Skjáir fyrir skrifstofur og stofnanir
Starfsfólk sem er ekki við tölvu missir af tölvupóstinum. Skjár í móttöku, á kaffistofu eða á vinnusvæði nær til þess þar sem það er.
Móttökuskjáir
Skjár í móttöku býður gesti velkomna og sýnir helstu upplýsingar.
Fundarherbergisskjáir
Skjár með innbyggðri myndavél, hljóðnema og hátölurum – fjarfundur tilbúinn með einni snertingu, engin aukatæki.
Innri tilkynningar á kaffistofu
Fréttir og tilkynningar til starfsfólks þar sem það kemur saman.
Lyftu- og gangaskjáir
Algengar spurningar
Eru til skjáir fyrir fundarherbergi?
Já, við bjóðum fundarherbergisskjái með öllum búnaði innbyggðum – myndavél, hljóðnema og hátölurum – sem tengjast beint við fundarkerfið ykkar.
Hver sér um efnið?
Oftast einn tengiliður hjá ykkur; við kennum honum á kerfið.
Er þetta öruggt fyrir innri upplýsingar?
Kerfið er með hlutverkastýringu og hægt er að hýsa það á ykkar eigin þjónum.