Stafrænir matseðlar og tilboðsskjáir
Matseðill sem breytist á einum stað fyrir alla staði – morgun, hádegi og kvöld. Og hábirtuskjáir í glugganum sem ná athygli þeirra sem ganga fram hjá, eins og við höfum sett upp hjá fjölda veitingastaða.
Stafrænn matseðill yfir afgreiðslu
Matseðillinn sést vel yfir afgreiðslunni og auðvelt er að breyta verði og réttum.
Sjálfsafgreiðslustandur
Hábirtuskjáir í glugga
Skjáir sem sjást í dagsbirtu og ná til gangandi vegfarenda áður en þeir velja stað. Við höfum sett þá upp í gluggum fjölda veitingastaða.
Borðskjáir með tilboðum
Litlir skjáir á borðum eða afgreiðsluborði minna á tilboð og nýjungar.
Algengar spurningar
Getur matseðillinn tengst kassakerfinu?
Í mörgum tilfellum, já. Við skoðum kerfið ykkar og segjum til.
Hvað ef verð breytist?
Þið breytið á einum stað og það birtist á öllum stöðum um leið.
Sést skjárinn í glugganum í dagsbirtu?
Já. Í glugga notum við hábirtuskjái sem eru gerðir fyrir sólarljós, og við höfum reynslu af þeim úr fjölda veitingastaða.