Skjáir fyrir verslanir
Fólk gengur fram hjá verslun á þremur sekúndum. Skjár í glugganum eða við innganginn er það sem fær það til að stoppa – og tilboðið á honum er uppfært úr kerfinu, ekki með prentun.
Gluggaauglýsingar
Skjár í glugga vekur athygli þeirra sem eiga leið hjá og sýnir tilboð eða vörur utan frá.
Vöruskjáir í verslun
Skjáir við vörurnar kynna nýjungar og tilboð þar sem viðskiptavinir taka ákvörðun.
Útiskilti á bílaplani
Skjár á bílaplani sýnir tilboð og skilaboð áður en viðskiptavinir koma inn.
Sjálfsafgreiðsla
Algengar spurningar
Sést skjárinn í dagsbirtu?
Já, í glugga notum við hábirtuskjái sem eru gerðir fyrir sólarljós.
Getum við sjálf breytt tilboðunum?
Já, í kerfinu sem við kennum ykkur á – eða þið sendið okkur efnið.
Þarf skjárinn nettengingu?
Já, en hann heldur áfram að spila síðasta efni þótt netið detti út.