Garðabær
Matseðlar sem uppfærast sjálfir í skólum og leikskólum
Áskorunin
Garðabær vildi eitt kerfi fyrir skjái í skólum og leikskólum og losna við vikulegan innslátt matseðla.
Lausnin
Við innleiddum öflugt og notendavænt skjástýringarkerfi hjá Garðabæ. Við sáum um uppsetningu, kennslu og bein samskipti við tengiliði í skólum og leikskólum og léttum þannig á umsjón sveitarfélagsins. Með sérforritaðri tengingu við Skólamat birtast matseðlar nú sjálfkrafa í viðmóti sem við hönnuðum. Tengingin og viðmótið voru unnin án aukagjalds. Samstarfið heldur áfram að vaxa með fleiri skjám fyrir starfsfólk og nemendur. Aðstoð við að setja inn efni og svör við spurningum um kerfið eru hluti af áskriftarþjónustunni.