Ístak

Upplýsingar til starfsfólks á öllum verkstöðum Ístaks

Ístak vildi geta miðlað mikilvægum skilaboðum og reglum til starfsfólks á verkstöðum fyrirtækisins. Við settum upp upplýsingaskjái sem þola sólarhringsnotkun og innleiddum öflugt, notendavænt skjástýringarkerfi. Lausnin gerir Ístaki kleift að halda utan um skjáefnið frá einum stað og koma upplýsingum á framfæri þar sem starfsfólkið er að störfum. Þannig styðja skjáirnir við samræmda upplýsingamiðlun þvert á verkstaði.

Áskorunin

Ístak vildi koma öryggisreglum, tilkynningum og fréttum frá fyrirtækinu til starfsfólks á verkstöðum um allt land, á fleiri en einu tungumáli, og hafa sama kerfi á skrifstofunum.