N1

Allir skjáir N1 í einu kerfi – um land allt

Við aðstoðum N1 við innleiðingu Navori á öllum skjám fyrirtækisins um land allt, þar á meðal stóru LED-flötunum utandyra. Skjáirnir gegna fjölbreyttum hlutverkum – frá matseðlum og tilboðum til upplýsingamiðlunar og auglýsinga. Með sameinaðri skjástýringu verður einfaldara að halda utan um efnið frá einum stað. Samhliða innleiðingunni vinnum við með N1 að endurnýjun skjábúnaðar og finnum sérsniðnar skjálausnir fyrir hverja verslun. Við sjáum um uppsetningu og kennslu og notum Navori StiX-spilara til að keyra efnið á skjánum. Samstarfið byggir á persónulegum samskiptum og áframhaldandi þjónustu.

Áskorunin

Skjáir N1 voru komnir til ára sinna og keyrðu á ólíkum kerfum eftir stöðvum. N1 vildi eitt kerfi fyrir alla skjái, innandyra sem utan, sem réði líka við auglýsingar og tilboð í rauntíma.